Við greinum tímaþjófana
Hjá Works er sérfræðiteymi sem smíðar sjálfvirk kerfi fyrir íslensk og erlend fyrirtæki. Við höfum sjálf reynslu af því hve mikinn tíma rekstraraðilar eyða í handvirk, síendurtekin verkefni sem gætu verið framkvæmd sjálfkrafa, og við ákváðum að gera eitthvað í því.
Eftirspurnin er til staðar.
Lausnirnar vantaði.
Í takt við aukna eftirspurn eftir sjálfvirkni sáum við tækifæri til að bjóða fyrirtækjum upp á eitthvað sem áður var illaðgengilegt. Við erum ekki að tala um flóknar hugbúnaðarlausnir eða dýra ráðgjöf, heldur einföld og vel smíðuð ferli sem leysa raunveruleg vandamál.
Hvort sem um er að ræða hárgreiðslustofu sem vill fjölga endurbókunum, eða ferðaþjónustufyrirtæki sem vill sleppa því að svara sömu spurningunni þrisvar sinnum á dag: við getum hjálpað.
Stofnandi
Davíð Hansson
Stofnandi og sjálfvirkniráðgjafi
Davíð Hansson er stafrænn markaðsráðgjafi með nær tveggja áratuga reynslu af stafrænni markaðssetningu, auglýsingum og vefmálum. Hann stofnaði Works til að smíða sjálfvirk kerfi fyrir íslensk fyrirtæki, byggð á þeim verkfærum sem þau nota nú þegar.
Hann er með BS-gráðu í viðskiptafræði og MS-gráðu í markaðsstjórnun. Sérsvið hans eru sjálfvirknivæðing rekstrar, Meta Ads, Google Ads og leitarvélabestun. Hann rekur einnig systurfyrirtækið Bandstrik, sem sérhæfir sig í sýnileika íslenskra fyrirtækja í svörum gervigreindar.
Beint samband: david@works.is · LinkedIn
Tveir áratugir. Margir geirar.
Teymið á bak við Works hefur unnið með fyrirtæki á öllum stigum, frá eins manns rekstri til stórra fyrirtækja og ríkisstofnana. Við höfum sérþekkingu á stafræna markaðssetningu og stjórnun viðskiptatengsla og þekkjum hvata og hindranir fyrirtækja á ólíkum skeiðum.
Ferðaþjónusta
Djúp reynsla af markaðssetningu og rekstri í ferðaþjónustu, bæði hér á landi og á alþjóðlegum mörkuðum.
Lítil og meðalstór fyrirtæki
Við þekkjum hvata þeirra sem eru að reka fyrirtæki á eigin spýtur: tímaskortur, mannekla og þörfin fyrir lausnir sem virka.
Stór fyrirtæki og stofnanir
Við höfum þjónustað stærri fyrirtæki og ríkisstofnanir og vitum hvernig á að ná árangri í flóknum skipulagseiningum.
Stjórnun viðskiptatengsla (CRM)
Tenging CRM kerfa við daglegan rekstur og samskipti fyrirtækja er vannýtt auðlind. Við getum aðstoðað með að afhjúpa mikilvæg gögn sem eru þegar til staðar innan ykkar kerfa.
Hentar þetta öllum?
Heiðarleiki í fyrirrúmi
Það er alltaf hægt að bæta við flæði en ef sjálfvirknin mun ekki skila ásættanlegum ávinning við upplifun eða rekstur, þá látum við vita.
Ein uppsetning - endalaus keyrsla
Markmiðið er að þú þurfir aldrei að hugsa um þessi litlu og tímafreku verkefni. Við setjum þau upp, prófum og vöktum. Þú einbeitir þér að því sem skiptir máli.
Við þekkjum íslenska markaðinn
Við erum ekki erlent fyrirtæki að selja almennar lausnir. Við vitum hvernig íslenskir viðskiptavinir hugsa, þekkjum rekstrarumhverfið og hindranir.
Athugum hvort við eigum samleið.
Bókaðu ókeypis 20 mínútna fund. Við greinum þínar þarfir og komum með lausnir sem spara þér tíma og fjármagn.
Bóka fund →