<!-- Plain-text version of https://works.is/spurningar/, generated at build time. -->
# Spurningar og svör.

### Hvað kostar þjónustan?

Verðið fer eftir flækjustigi og umfangi. Við gerum alltaf fast tilboð áður en við byrjum.

### Hversu langan tíma tekur uppsetningin?

Flest verkefni eru komin í gang á tveimur til fjórum vikum. Við byrjum á því að þarfagreina og setjum svo upp flæði og göngum úr skugga um að allt virki eins og væntingar standa til.

### Virkar þetta með hugbúnaðinum sem við notum?

Já, við getum tengt saman næstum hvaða tól eða hugbúnað sem er. Við skiptum ekki út hugbúnaði nema klár ávinningur sé fyrir hendi og með samþykki viðskiptavinar.

### Hvað gerist ef eitthvað fer úrskeiðis eftir ræsingu?

Við vöktum kerfin og berum ábyrgð á að flæðið sé virkt. Ef eitthvað stoppar þá fáum við tilkynningu þess efnis og lögum það.

### Við erum lítið fyrirtæki. Hentar þetta okkur?

Flestar lausnir okkar eru hannaðar fyrir fyrirtæki með 1 til 20 starfsmenn. Sjálfvirknivæðing hentar litlum fyrirtækjum best þar sem fáar hendur vinna yfirleitt mörg verk.

### Hvað er Works öðruvísi en venjuleg hugbúnaðarfyrirtæki?

Við notum verkfæri sem þegar eru til frekar en að smíða allt frá grunni.

### Notar Works gervigreind?

Já, þar sem það á við. Við notum m.a. gervigreind til að svara fyrirspurnum, greina gögn, skrifa persónuleg skilaboð og greina kauphegðun.

### Get ég stöðvað eða breytt kerfinu eftir upphafsuppsetningu?

Já, þú getur bætt við flæðum, breytt þeim eða sagt upp þjónustunni samkvæmt þjónustusamningi. Kerfið er byggt utan um ykkar verkferla, ekki okkar.
