Við smíðum það
sem þú þarft.
Staðlaðir pakkar henta ekki öllum. Ef þú hefur sérstakt flæði í huga, eða grunar að eitthvað ætti að vera sjálfvirkt en veist ekki hvað, þá geturðu bókað kynningu og við förum yfir möguleikana.
Bóka kynningu →Hvað er hægt að gera?
Hér eru örfá dæmi um algeng, sérsniðin flæði sem við getum sett upp á skömmum tíma.
Instagram- og Facebook skilaboð
Sjálfvirk svör við algengum spurningum s.s. verð, opnunartímar eða bókunarhlekkir. Enginn fyrirspurn er ósvöruð.
Eftirfylgni með reikningum
Sjálfvirkur áminningapóstur sendur til viðskiptavina um, eða eftir, gjalddaga.
Veðurtengt flæði
Ferðaþjónustu- og útivistarfyrirtæki geta sent sjálfvirkar tilkynningar ef veðurspá breytist.
Innleiðing nýrra viðskiptavina
Þegar einhver kaupir, bókar eða skráir sig fær hann sjálfkrafa þakkarpóst ásamt öllum helstu upplýsingum án þess að þú lyftir fingri.
Innri tilkynningar og skýrslugjöf
Fáðu sjálfvirkar samantektir á hverjum degi: hversu margar sölur, bókanir, fjölda umsagna og hvað er framundan. Beint í pósthólfið þitt.
Eitthvað annað?
Ef þú hefur eitthvað í huga sem er ekki talið hér upp þá er best að hafa samband og við metum umfangið.
Verkfæri sem þú borgar nú þegar fyrir, vinna sem eitt.
Enginn nýr hugbúnaður. Við tengjum saman það sem þú ert að vinna með nú þegar.
Frá hugmynd að veruleika.
Kynningarfundur
Við greinum þarfir ykkar og kortleggjum hvaða þætti er hægt að sjálfvirknivæða. Frítt og án skuldbindinga.
Tilboð og samþykki
Við sendum þér skýra áætlun: hvað við smíðum, hvað það kostar og hvenær það er tilbúið. Þú samþykkir áður en við byrjum.
Uppsetning, prófanir og afhending
Við smíðum, prófum og setjum flæðið í gang. Þú færð leiðbeiningar, ef þarf, og við sjáum um vöktun eftir að allt fer í loftið.
Athugum hvort við eigum samleið.
Bókaðu ókeypis 20 mínútna fund. Við greinum þínar þarfir og komum með lausnir sem spara þér tíma og fjármagn.
Bóka fund →