<!-- Plain-text version of https://works.is/local/, generated at build time. -->
# Svör, umsagnir og eftirfylgni sem sjá um sig sjálf.

Kerfi sem sér um tölvupósta, umsagnabeiðnir, eftirfylgni og margt fleira fyrir þig. Kerfið virkar allan sólarhringinn og þú færð fast tilboð áður en við byrjum.

## Algengustu sjálfvirknilausnirnar.

Veldu lausnina til að sjá hvernig hún virkar í reynd.

## Dæmi um sjálfvirk ferli.

Tvö dæmi, teiknuð frá upphafi til enda. Þitt kerfi er sniðið að þínum rekstri.

### Umsagnir safnast sjálfkrafa

Skömmu eftir þjónustulok fer sjálfkrafa út hlýleg beiðni með beinum hlekk á Google Review. Orðspor þitt vex mánuð eftir mánuð, án þess að þú lyftir fingri.

Sæl Anna, já, við eigum laust á laugardaginn kl. 10. Á ég að taka frá tvö sæti?

### Fyrirspurnum svarað samstundis

Verð, opnunartímar, bókunarhlekkir: kerfið svarar algengum spurningum strax, allan sólarhringinn. Engin fyrirspurn glatast, ekki einu sinni um miðnætti.

## Hver er ávinningurinn?

Sláðu inn þínar tölur. Þetta er áætlun, ekki tilboð.

### Þínar forsendur

Allar tölur eru þínar eigin. Breyttu þeim svo þær passi við reksturinn.

Áætlaður sparnaður

24 klst. á mánuði

Jafngildir 15% af stöðugildi í tíma.

Hér eru bara fyrirspurnir taldar með, umsagnabeiðnir og eftirfylgni bætast svo við.

Þetta er áætlunarlíkan, ekki mæld niðurstaða fyrir þitt fyrirtæki. Stöðugildi miðast við 160 vinnustundir á mánuði.

Works kostar uppsetningargjald og mánaðargjald, og þú færð alltaf fast tilboð áður en vinna hefst. Hafa samband &rarr;

Opna reiknivélina í fullri stærð &rarr;

## Þrjú skref, ekkert vesen.

### Samtal

Við tölum saman í 20 mínútur, frítt og án skuldbindinga. Við finnum hvað tekur tímann þinn.

### Tilboð og samþykki

Þú færð skýrt tilboð um hvað við gerum, hvað það kostar og hvenær. Við byrjum ekki fyrr en þú samþykkir.

### Uppsetning

Við setjum kerfið upp og prófum það. Flest kerfi eru komin í gang á tveimur til fjórum vikum og við fylgjumst með þeim áfram.

## Athugum hvort við eigum samleið.

Tökum 20 mínútna samtal, frítt og án skuldbindinga. Ef sjálfvirkni borgar sig ekki fyrir reksturinn þinn, þá segjum við það.
