<!-- Plain-text version of https://works.is/ferdathjonusta/whatsapp/, generated at build time. -->
# Sjálfvirkni í gegnum WhatsApp

Bókanir staðfestar á sekúndum. Umsagnir safnast sjálfkrafa. Gestirnir koma alltaf undirbúnir. Þú sérð öll samtöl og ræður alltaf ferðinni.

Dæmi á ensku fyrir erlenda gesti. Tenging við bókunarkerfi og aðkoma starfsfólks eru skilgreind fyrir hvert verkefni.

## Bókun á sekúndum, allan sólarhringinn

Gesturinn sendir fyrirspurn. Kerfið svarar á hans tungumáli, kannar laus sæti og sendir tengil til að bóka og greiða. Staðfesting og kvittun fara sjálfkrafa til gestsins.

## Fleiri stjörnur, án þess að þurfa að biðja um þær

Rétt eftir ferðina fær gesturinn hlýleg þakkarskilaboð með tengli á Google Review, Tripadvisor eða annað. Beiðnin er send á besta tíma, þegar upplifunin er enn í fersku minni.

## Gestirnir koma undirbúnir

Frá staðfestingu til þakkarskilaboða heldur kerfið utan um samskiptin í gegnum alla ferðina. Gestirnir mæta undirbúnir og þú þarft ekki að svara sömu spurningunum aftur og aftur.

Booking confirmed! 🎉 We look forward to seeing you Saturday June 14 at 09:00.

Don't forget! 🐋 We meet Saturday at 09:00 at the harbour. Dress warm!

Tomorrow is the day! 🌊 Please arrive 10 min before 09:00. See you there!

Hope you had an amazing time! ⭐ Would you leave us a quick review? It takes 30 seconds.

## Athugum hvort við eigum samleið.

Tökum 20 mínútna samtal, frítt og án skuldbindinga. Ef sjálfvirkni borgar sig ekki fyrir reksturinn þinn, þá segjum við það.
