<!-- Plain-text version of https://works.is/ferdathjonusta/, generated at build time. -->
# Sjálfvirkni sem þjónar þínum viðskiptavinum 24/7

Bókanir staðfestar á sekúndum. Umsagnir safnast sjálfkrafa. Gestirnir koma alltaf undirbúnir. Þú sérð öll samtöl og ræður alltaf ferðinni.

## Allt gerist sjálfkrafa á meðan þú sefur.

Eitt kerfi sér um allt bókunarferlið: frá fyrstu fyrirspurn til umsagnarbeiðni. Engin skilaboð gleymast, og þú getur gripið inn í hvenær sem er.

- Svarar á hvaða tungumáli sem er Enska, þýska, franska og fleiri. Sjálfvirkt.

- Bókar, staðfestir og sendir kvittun Án þess að þú þurfir að gera neitt

- Sendir veðurtengdar tilkynningar Afbókanir og endurbókanir afgreiddar á örskotsstundu

- Safnar umsögnum Hlýleg skilaboð með beinum tengli á Google Review, Tripadvisor eða annað

- Keyrir allan sólarhringinn Öllum fyrirspurnum svarað jafnóðum.

## Dæmi um sjálfvirk ferli.

Eitt dæmi, frá fyrstu skilaboðum gestsins að staðfestri bókun.

### Gesturinn skrifar í WhatsApp. Bókunin er staðfest áður en þú vaknar.

Gestir frá útlöndum senda fyrirspurn beint í WhatsApp, rásina sem þeir nota mest. Kerfið svarar gestum á þeirra tungumáli og kannar laus sæti í bókunarkerfinu þínu, til dæmis Bókun, GoDo eða Rezdy. Gesturinn fær tengil til að bóka og greiða, og staðfesting og kvittun fara sjálfkrafa til hans. Þú sérð öll samtöl og getur tekið við hvenær sem er.

## Sýnishorn af því sem við bjóðum upp á

Veldu þá lausn sem hentar þínu fyrirtæki, eða láttu okkur setja saman heildarpakka.

### WhatsApp sjálfvirkni

Bókanir staðfestar, umsögnum safnað og áminningar til viðskiptavina, allt í gegnum WhatsApp. Keyrir 24/7 á hvaða tungumáli sem er.

### Tölvupóstar sem þjóna gestum

Áminningar, veðurspá og þakkarpóstur sent sjálfkrafa á réttum tíma.

### Veðurbreytingar afgreiddar sjálfkrafa

Ef veður breytist fær gestur tilkynningu, afbókun afgreidd og boðið upp á endurbókun, án þess að þú þurfir að gera neitt.

### Tengist bókunarkerfi þínu

Bókun, GoDo, Rezdy og fleiri. Bókanir samstilltar og uppfærðar sjálfkrafa.

## Athugum hvort við eigum samleið.

Tökum 20 mínútna samtal, frítt og án skuldbindinga. Ef sjálfvirkni borgar sig ekki fyrir reksturinn þinn, þá segjum við það.
